Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Spennuþættir

Er búinn að vera að stúdera seríuna "Heroes" sem er að fara að byrja á stöð 2 (held ég). Hef verið að downloada þessum þáttum og er búinn með fyrstu níu þættina og verð að segja að þeir lofa góðu.

Styttist síðan í Lost en það hefur verið löng bið síðan í cliffhangernum í 6. þætti í 3. seríu.

Síðasta stúdían sem er í gangi er 5. sería af 24. Fékk hana í jólagjöf og Jack Bauer er u.þ.b. að fara að taka yfir DVD spilarann minn eina ferðina enn.

Spennuseríur sem ég hef séð undanfarið:

 1-2. 24 og Lost - Erfitt að gera upp á milli, mjög ólík spenna og uppbygging.

3. The 4400 - Búinn að sjá 1. seríu og með þeim betri sem ég hef séð.

4. Invasion - Hafði mjög gaman af þessum spennandi og áhugaverð sería en var því miður cancelled mér til gremju :-(

5. Heroes - lofar mjög góðu

6. Alias - Búinn með 4 seríur og á aðeins síðustu seríuna eftir.


Stafsetnyng Ýslendynga

Ok ég tel mig nú ekki vera neinn sérfræðing í stafsetningu og geri örugglega einhverjar villur í mínum texta en ég get samt ekki orða bundist yfir svona svakalegum stafsetningarvillum eins og maður sér. Fyrir ofan póstkassana í blokkinni minni er orðsending. Ég mun grípa niður í "highlights" úr henni:

"Kæru íbúðareigendur .....

..... Ingangurinn í blokkina er því miður.......beðnir að taka með sér Blöðin ekki henda þeim þar.

Sínum öðrum tilitsemi göngum vel um okkar eign.

              Húsnemd !"

 Húsnemd er my personal favourite.


Mánudagur til mæðu

Þeir geta verið erfiðir mánudagarnir. Þessi er engin undantekning. Hvernig er það eiginlega með Íslendinga kann enginn lengur að keyra? Ég held ég hafi verið næstum 25 mínútur á leiðinni í vinnuna í morgun. Slapp reyndar aldrei þessu vant út úr hverfinu án þess að lenda á eftir sleða (á föstudaginn lenti ég á kellingu á 20 km hraða og var ca. 4 mínútur að komast brúttó 500m til vinstri frá heimili mínu að Haukaheimilinu).  Tók skelfilega ákvörun og ákvað að prófa að beygja hjá Kaplakrika og fara gegnum Breiðholtsbraut í stað Kringumýrarbrautar. WRONG decision! Keyrði á 20 frá IKEA til Smáralindar...hvernig stendur á þessu? Er alltaf ein gömul kelling fremst sem heldur röðinni á þessum hraða? Já ok svo kem ég að ljósum...nýkomið grænt búið að vera í 20-25 sekúndur...NEI þá þarf ég að STOPPA!!!!! Eru allir að hella upp á kaffi á ljósum? Hvað er vandamálið að taka ca. samtaka af stað þegar það kemur grænt? Er ég pirraður???? JÁ.

Svo þegar ég kem til vinnu heyri ég leiðindafréttir. Einn samstarfsfélagi féll í stiga heima hjá sér og slasaðist lítillega og er því ekki við vinnu og annar vinnufélagi missti aldraða móður sína og er því ekki heldur við vinnu. Við erum því bara tveir í myrkrinu hérna inni í okkar herbergi :-(


Átta mig ekki á þessari reglu

Hver er eiginlega tilgangurinn með þessari reglu? Það eru nú þegar tveir félagsskiptagluggar sem tryggja ákveðinn stöðugleika, af hverju er verið að bæta öðru lagi ofaná það? Ma-ma-ma maður bara áttar sig ekkert á svona vitleysu!
mbl.is Mascherano getur ekki yfirgefið West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrstu kaup Eggerts

Mér líst vel á þessi kaup og vonandi að þetta blási nýju lífi í mína menn. Etherington hefur einhvern veginn ekki verið að spila nálægt sínum potential. Það er ósköp einfalt að það þarf að blása einhverju nýju lífi og sjálfstrausti í þetta lið og ná upp smá góðu runni.

Það myndi svo ekki særa tilfinningar mínar að fara að fá Dean Ashton aftur og svo að Tevez og Mascherano færu nú að láta til sín taka...þó að það sé nú ólíklegra í tilfelli þess síðarnefnda.


mbl.is Boa Morte gengur til liðs við West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dallas með besta vinningshlutfallið í NBA

Þetta er í annað skiptið í vetur sem Dallas vinna 12 leiki í röð.  Ég verð að segja að mér finnst Dallas liðið stórskemmtilegt og skemmtilegast að fylgjast með framgöngu þeirra og svo Phoenix Suns. Mínir menn verða samt eftir sem áður Chicago Bulls en því miður þá er ekki líklegt að þeir challengi titilinn alveg á næstunni.

Dallas fór í úrslitin í fyrra og fannst mér þeir verðskulda titilinn. Þeir unnu fyrstu tvo leikin AUÐVELDLEGA og voru gjörsamlega með þriðja leikinn í hendi sér einhverjum hátt í tuttugu stigum yfir í byrjun fjórða leikhluta en létu þá Miami koma til baka og fá smá momentum. Miami liðið náði svo að stela titlinum eftir hreint frábæra frammistöðu hjá Dwayne Wade og hef ég ekki séð annað eins síðan MJ var og hét.

Miami er gjörsamlega óþekkjanlegt það sem af er vetrar og held ég að meistarinn hljóti að koma úr vestrinu í ár. Það sem Dallas bætti einna helst í fyrra var varnarleikurinn og var það lykilatriði til að gera alvöru contender úr Dallas sem þegar hafði á að skipa stórskemmtilegu sóknarliði sem Don Nelson hafði þróað. Avery Johnson er hinsvegar að gera frábæra hluti með þetta lið. Það sem einna helst gæti háð Dallas er breiddin og svo það að þeir treysta mjög mikið á skot fyrir utan.

Hinsvegar verð ég að segja að Dirk Nowitski er að verða einn af mínum uppáhaldsleikmönnum. Þvílíka úrslitakeppnin sem hann átti í fyrra og ég get varla beðið eftir úrslitakeppninni í ár. Josh Howard og Jason Terry eru svo valkostir númer 2 og 3. Devin Harris og E.Dampier fylla svo upp í byrjunarliðið en eftir það voru þeir frekar þunnir í fyrra. Stackhouse var aðalmaðurinn af bekknum og var sterkur í playoffs en hefur verið meiddur mikið í ár skilst mér. Dallas náðu reyndar í reynda menn í Anthony Johnson og Austin Croshere og það gæti skilað sér í úrslitakeppninni.

Fánýtur fróðleikur: Ég kalla Dirk Nowitski "Dirka Dirka" og vísa þar í ákveðið atriði í kvikmyndinni Team America World Police.


mbl.is NBA: Enn vinnur Dallas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

West Ham pirringur

Þeir sem þekkja mig vita að ég held með West Ham og hef gert frá því að ég man eftir mér. Mér finnst það kúl ... það halda allir með einhverjum toppliðum en mér finnst alvöru að halda með liðum eins og West Ham og mínu uppeldisfélagi Þrótti í gegnum súrt og sætt. Það verða einhvern veginn skemmtilegri góðu stundirnar sbr. næstum því góða stundin í bikarúrslitunum í fyrra sem Gerrard þurfti að eyðileggja í blálokin ;-(

En nóg um það. Árangur liðsins í ár er svo arfaslakur að maður getur á varla orð yfir þetta. Nú síðast var það 6-0 afhroð gegn spútnikliði Reading. Maður skilur varla hvað vandamálið er í herbúðum liðsins, ekki er það mannskapurinn frekar en síðast þegar liðið féll (Joe Cole, Carrick, Glen Johnson, Defoe, Kanoute þarf varla að rifja það upp).  Svo var snemma á tímabilinu bætt í hópinn tveim argentískum stórstjörnum og nú síðast vill Mascherano fara frá liðinu af því að hann fær ekkert að spila!! (http://mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1245129).  Maður skilur ekkert í þessu...af hverju er þessum mönnum ekki bara hent inná og þeir látnir venjast boltanum? Mascherano var lykilmaður í frábæru liði og miðju Argentínu á HM og Tevez var sömuleiðis mjög frískur.

 Góðu fréttirnar eru þó þær að sultulið eins og Sheffield United og Watford sem hægt er að draga niður í svaðið eru upp í ár (Charlton reyndar fyrir neðan Sheff. Utd eins og er) en hinsvegar eru orðin 4 stig í að komast úr fallsæti og ekki alveg ljóst hvaða lið er hægt að senda niður...allavega þarf mikið að gerast svo að ég þurfi ekki enn eina ferðina að sætta mig við að liðið mitt falli um deild.


X-hvað?

Dömur mínar og limir. Það eru 6 hliðar á teningi. Hér er minn vettvangur til að pirrast út í samfélagið og tilveruna.

« Fyrri síða

Höfundur

Ingvar Þór Jóhannesson
Ingvar Þór Jóhannesson
Tölvunarfræðingur FIDE meistari í skák og áhugamaður um íþróttir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband