Færsluflokkur: Íþróttir
1.5.2007 | 18:24
Ansi merkilegt....
Byrjunarliðin tilbúin á Anfield | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.4.2007 | 21:53
Það er von!
Allavega meiri von heldur en ég hefði getað ímyndað mér fyrir 1-2 mánuðum. Það væri náttúrulega bara kraftaverk ef West Ham nær að forðast fallið. Ekki það að liðið eigi það ekki skilið og hafi ekki mannskapinn í það...mínir menn hafa bara hreinlega verið heillum horfnir og algjörlega án sjálfstrausts 90% vetrarins.
En spáum aðeins í þessu:
15. Sheff Utd. 38 stig -19
16. Fulham 36 stig -19 eiga leik til góða
17. Wigan 35 stig -22
18. West Ham 35 stig -27
Sheff Utd á eftir:
Aston villa úti og Wigan heima. Ljóst er að leikurinn við Wigan gæti orðið crucial leikur í lokaumferðinni tapi þeir fyrir Villa. Villa hefur hinsvegar að litlu að keppa og því líklegt að Sheff Utd. hangi uppi og þá umfram allt á sigrinum á West Ham á dögunum.
Fulham á eftir:
Arsenal úti og Liverpool heima og loks Middelsboro úti ! Mjög erfitt prógram og maður sér fyrir sér að þeir gætu aðeins náð 1-2 stigum úr þessu prógrammi.
Wigan á eftir:
Middlesboro heima og Sheff Utd. úti. Hafa ekki unnið í sjö leikjum í röð og ef þeir tapa gegn Middlesboro eru þeir líklega toast.
West Ham á svo eftir:
Bolton heima....leikur sem algjörlega og gjörsamlega verður að vinnast...nema að Wigan tapi rest þá gæti jafntefli nægt. Draumurinn er hinsvegar að klára þennan leik og vona að Man Utd. hafi tryggt sér titilinn fyrir lokaumferð og þá gæti West Ham náð crucial stigi í lokaumferðinni með því að hanga á jafntefli.
Ég hef hinsvegar tekið mér það bessaleyfi að fella Charlton sem eru með 33 stig og eiga eftir Tottenham heima og Liverpool úti!
Curbishley: Erum enn á lífi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt 1.5.2007 kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2007 | 16:37
Liverpool *HAFNAÐ*
Voðalega fannst mér gaman að sjá Liverpool GJÖRSAMLEGA <*stimpl*> HAFNAÐ</*stimpl*> í gær. Fara eitthvað voða í mig og þá sérstaklega að það er aldrei hægt að ræða um Liverpool raunsætt við Liverpool aðdáendur. Lifa allir á einhverri fornri frægð og einum grísa CL titli. Ég meina Blackburn hefur unnið PL, ekki Liverpool.
Allavega finnst mér þessi 5-aur compliments of JHS helvíti góður:
"MICHAEL JACKSON, HAS ASKED RAFA BENITEZ TO BE HIS NEW MANAGER....
SO HE CAN GET SPANKED AT HOME BY 11 KIDS"
Íþróttir | Breytt 11.1.2007 kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.1.2007 | 10:16
Fyrstu kaup Eggerts
Mér líst vel á þessi kaup og vonandi að þetta blási nýju lífi í mína menn. Etherington hefur einhvern veginn ekki verið að spila nálægt sínum potential. Það er ósköp einfalt að það þarf að blása einhverju nýju lífi og sjálfstrausti í þetta lið og ná upp smá góðu runni.
Það myndi svo ekki særa tilfinningar mínar að fara að fá Dean Ashton aftur og svo að Tevez og Mascherano færu nú að láta til sín taka...þó að það sé nú ólíklegra í tilfelli þess síðarnefnda.
Boa Morte gengur til liðs við West Ham | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2007 | 09:54
Dallas með besta vinningshlutfallið í NBA
Þetta er í annað skiptið í vetur sem Dallas vinna 12 leiki í röð. Ég verð að segja að mér finnst Dallas liðið stórskemmtilegt og skemmtilegast að fylgjast með framgöngu þeirra og svo Phoenix Suns. Mínir menn verða samt eftir sem áður Chicago Bulls en því miður þá er ekki líklegt að þeir challengi titilinn alveg á næstunni.
Dallas fór í úrslitin í fyrra og fannst mér þeir verðskulda titilinn. Þeir unnu fyrstu tvo leikin AUÐVELDLEGA og voru gjörsamlega með þriðja leikinn í hendi sér einhverjum hátt í tuttugu stigum yfir í byrjun fjórða leikhluta en létu þá Miami koma til baka og fá smá momentum. Miami liðið náði svo að stela titlinum eftir hreint frábæra frammistöðu hjá Dwayne Wade og hef ég ekki séð annað eins síðan MJ var og hét.
Miami er gjörsamlega óþekkjanlegt það sem af er vetrar og held ég að meistarinn hljóti að koma úr vestrinu í ár. Það sem Dallas bætti einna helst í fyrra var varnarleikurinn og var það lykilatriði til að gera alvöru contender úr Dallas sem þegar hafði á að skipa stórskemmtilegu sóknarliði sem Don Nelson hafði þróað. Avery Johnson er hinsvegar að gera frábæra hluti með þetta lið. Það sem einna helst gæti háð Dallas er breiddin og svo það að þeir treysta mjög mikið á skot fyrir utan.
Hinsvegar verð ég að segja að Dirk Nowitski er að verða einn af mínum uppáhaldsleikmönnum. Þvílíka úrslitakeppnin sem hann átti í fyrra og ég get varla beðið eftir úrslitakeppninni í ár. Josh Howard og Jason Terry eru svo valkostir númer 2 og 3. Devin Harris og E.Dampier fylla svo upp í byrjunarliðið en eftir það voru þeir frekar þunnir í fyrra. Stackhouse var aðalmaðurinn af bekknum og var sterkur í playoffs en hefur verið meiddur mikið í ár skilst mér. Dallas náðu reyndar í reynda menn í Anthony Johnson og Austin Croshere og það gæti skilað sér í úrslitakeppninni.
Fánýtur fróðleikur: Ég kalla Dirk Nowitski "Dirka Dirka" og vísa þar í ákveðið atriði í kvikmyndinni Team America World Police.
NBA: Enn vinnur Dallas | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2007 | 10:04
West Ham pirringur
Þeir sem þekkja mig vita að ég held með West Ham og hef gert frá því að ég man eftir mér. Mér finnst það kúl ... það halda allir með einhverjum toppliðum en mér finnst alvöru að halda með liðum eins og West Ham og mínu uppeldisfélagi Þrótti í gegnum súrt og sætt. Það verða einhvern veginn skemmtilegri góðu stundirnar sbr. næstum því góða stundin í bikarúrslitunum í fyrra sem Gerrard þurfti að eyðileggja í blálokin ;-(
En nóg um það. Árangur liðsins í ár er svo arfaslakur að maður getur á varla orð yfir þetta. Nú síðast var það 6-0 afhroð gegn spútnikliði Reading. Maður skilur varla hvað vandamálið er í herbúðum liðsins, ekki er það mannskapurinn frekar en síðast þegar liðið féll (Joe Cole, Carrick, Glen Johnson, Defoe, Kanoute þarf varla að rifja það upp). Svo var snemma á tímabilinu bætt í hópinn tveim argentískum stórstjörnum og nú síðast vill Mascherano fara frá liðinu af því að hann fær ekkert að spila!! (http://mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1245129). Maður skilur ekkert í þessu...af hverju er þessum mönnum ekki bara hent inná og þeir látnir venjast boltanum? Mascherano var lykilmaður í frábæru liði og miðju Argentínu á HM og Tevez var sömuleiðis mjög frískur.
Góðu fréttirnar eru þó þær að sultulið eins og Sheffield United og Watford sem hægt er að draga niður í svaðið eru upp í ár (Charlton reyndar fyrir neðan Sheff. Utd eins og er) en hinsvegar eru orðin 4 stig í að komast úr fallsæti og ekki alveg ljóst hvaða lið er hægt að senda niður...allavega þarf mikið að gerast svo að ég þurfi ekki enn eina ferðina að sætta mig við að liðið mitt falli um deild.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Dagný litla systir Byrjuð að blogga aftur
- Bjössitkd Slappasti bloggari landsins
- Sigga syz Löt í blogginu
- Dagný og bumban