14.3.2007 | 15:04
Blóðmjólkun - Boltinn í dag!
Bara smá pæling. Var að ræða þetta við félaga um helgina. Við fórum á leik Rangers og Osasuna í Evrópukeppninni meðan við vorum staddir út í Glasgow. Leikurinn fór fram á fimmutdeginum. Í stuttu máli voru Rangers stórkostlega heppnir að ná 1-1 á heimavelli og klassamunurinn mikill á liðunum. Við fórum því að ræða seinni leikinn. Ég hélt hann væri aftur á fimmtudegi....NEI. Nú eru helmingur leikjanna í UEFA Cup í dag miðvikudag og seinni helmingurinn á fimmtudag. Af hverju? Jú það er verið að blóðmjólka alla leikadaga vegna sjónvarps til að fá meiri pening í kassann. Sama er á teningnum í flestum deildum. England spilar laugardag/sunnudag/mánudag og yfirleitt eru lágmark 2 og yfirleitt 3 kick-off tímar á lau- og sunnudögum. Bara smá dæmi um hvað boltinn snýst svakalega um peninga. Nú er ég ekki beint að kvarta yfir þessu, maður nýtur þess auðvitað að sjá sem flesta leiki. Þetta er einfaldlega pæling á hvernig þessu er öðruvísi farið í nútímanum en áður var.
Annar punktur í þessari blóðmjólkunarpælingu eru búningar liða. Nú er það orðið svo að liðin skipta um búninga nánast á hverju seasoni og flest lið eru komin með 2-3 varaliðsbúninga. Allt er þetta gert til að auka búningasölu sem mest má. Svo eru meira að segja dæmi um að lið noti sérstaka búninga t.d. í meistaradeild o.fl. Gallharðir stuðningsmenn verða svo að kaupa alla búningana og sumir meira að segja þola ekki að eiga sama búning en árið eftir er komin önnur auglýsing framaná búninginn. "Money money money money........MONEY" Eins og O'Jays sungu um árið summerar þessar pælingar mínar upp.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2007 | 22:15
Þrítugur og bloggleti
Jæja...nú er maður orðinn þrítugur! Þetta er allt downhill from here eins og maðurinn sagði ;-)
Hélt upp á afmælið í gær með mínum nánustu solid súkkulaðikaka og jobba...svo fékk ég mér reyndar álíka mikið af brauðtertu svona til að standa betur undir aldrinum! Allavega notalegur dagur með systkinum og foreldrum og Stebbu og alltaf gaman að sjá litlu frænku sem gefur manni alltaf svo mikið :-)
Ég stefni svo á gott partý 17. mars til að halda uppá afmælið góða! Bið menn að taka þá dagsetningu frá! Ástæðan fyrir þessari dagsetningu er a) þetta verður að vera um helgi og b) aðrar dagsetningar voru ekki mögulegar. Síðasta helgi var Íslandsmót Skákfélaga og lokahóf þar. Urðum að sjálfsögðu Íslandsmeistarar þar :-) Núna um næstu helgi er svo helgarferð á dagskrá til Glasgow þannig að aðeins 17. stendur til boða!
Svo bið ég aðdáendur afsökunar á almennri bloggleti. Ég lá í flensu í 1,5 viku og er rétt að jafna mig á því og svo klúðruðu mbl menn eitthvað lykilorðum og ég nennti ekki að fletta alltaf í tölvupóstinum eftir lykilorði á borð við H94cwl2 til þess að skrifa einhverja netta bloggfærslu. En ég fann hvernig á að breyta lykilorðinu núna þannig að sú leti stendur til bóta!
Við þetta má bæta að það stefndi jafnvel í enn betri afmælisdag í gær en síðustu mínútur í West Ham-Tottenham komu í veg fyrir það. Þetta var greinilega síðasti séns til að ná upp stemmningu til að reyna að bjarga sér frá fali en eftir þennan leik er liðið einfaldlega fallið. Það dettur einfaldlega ekkert með liðinu. Þeir fá á sig mörk úr vafasömum vítum, vafasömum aukaspyrnum og svo á 95. mín þegar 4 mín er bætt við. Leikirnir við Fulham og Newcastle koma einnig upp í hugann. Þetta er einhverskonar andhverfa við meistaraheppni og kann ég ekki gott orð til að lýsa því. En svona er þetta...West Ham er fallið....I resign.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2007 | 16:13
Birgitta Líf Karlsdóttir
Myndir á www.karlsdottir.barnaland.is lykilorðið er gamli geltandi hvuttinn okkar sem þeir sem þekkja mig vita nú nafnið á :-)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.2.2007 | 15:51
Skussaboltinn í hnotskurn
Þetta comment hjá Kjartani Henry sem spilar með Celtic summerar vel upp breska boltann.
Það er gaman að kallinum og hann lætur vel í sér heyra. Hann stöðvaði einu sinni reitabolta þegar ég reyndi hælsendingu. Gekk síðan að mér og sagði: Þú spilar með varaliði Celtic en ekki Barcelona. Hættu þessari vitleysu." Hann er meira að segja ósáttur ef tilþrifin takast. Hann vill spila sinn breska bolta," sagði Kjartan Henry léttur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2007 | 09:59
Litla systir orðin mamma :-)
04:36 í nótt fæddist Dagný systur minni og Kalla kærasta hennar stúlkubarn. Móður og barni heilsast vel en Sigga systir fær mín samúð enda með flensu og fær ekki að sjá litlu frænku alveg næstu daga :-(
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.2.2007 | 11:01
Taekwondo-Bjössi
Óski mági mínum Birni Þorleifssyni innilega til hamingju með Norðurlandameistaratitilinn "um daginn" og svo er hann nýbúinn að rusla upp Opna sænska. Einn besti íþróttamaður Íslands en jafnframt einn sá minnst þekkti. Stefnir ótrauður á ÓL í Peking 2008 en hann var rændur á úrtökumóti fyrir síðustu leika en mikið hefur verið um klíkuskap í gegnum tíðina í dómaramálum í þessari íþrótt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2007 | 10:00
Ísland-Danmörk
Má til með að vitna í vin minn Davíð hér:
Þetta hef ég að segja um leikinn : fkn joqwgppo´qrgjrgwopj´grwojpgwrpjgwrvjp43wtpo´jv24yópj2y3v
o´pjhr e2o´phjereilhjerlehrlrwehlkerhncklrwhlkcrwhngcrwlkhn
rgklhrgneklrehklæerwbjkæergnb
kjlægwerbnklærgebklgærebrejkberjkbgrejkwerbjkvbjkd
vbjkædvbsdjkvbsdjkævbsd
Það dó eitthvað innra með mér
http://www.mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1250559
Handbolti | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.1.2007 | 19:38
Staða dagsins 29.01.2007
Þessi staða kom upp hjá mér í 5 mínútna hraðskák á netinu. Fann hér skemmtilegt gegnumbrot sem algjörlega leggur svörtu stöðuna í rúst. Hvítur leikur og vinnur!
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.1.2007 | 18:16
NBA Getraun #2 - lausnir
Þá er komið að lausnum á NBA getraun #2
1. Frá árunum 1994 til 2004 varð ekkert lið NBA meistari án þess að a.m.k. annar af tveim leikmönnum kæmi við sögu í meistaraliðinu. Hvaða tveir leikmenn eru þetta?
Hér klúðraði ég reyndar aðeins ártalinu, það er til 2004 en ekki til og með og hefði átt að segja 94-03. Rétt svar hér er að sjálfsögðu Steve Kerr og Robert Horry. Horry vann '94 og '95 með Houston, Kerr var með Chicago '96-'98 og Spurs '99 þá tók Horry aftur við og vann með Lakers '00-'02 og gott ef þeir voru svo ekki báðir með Spurs '03
2. Hverjir eru tveir síðustu leikmenn til að skora 50 stig eða fleiri fyrir Washington Wizards (áður Bullets) liðið?
Nokkuð margir klikkuðu á þessari. Gilbert Arenas var að sjálfsögðu síðastur til að setja 50+ fyrir Wizards en á undan honum var það svo meistari Michael Jordan sem setti 50 kvikindi.
Bónusstig: Nefnið þann sem náði 50 stigum á undan þeim tveim.
Bónusinn var kvikindislegur og hugsaður til að seperatea the boys from the men ásamt spurning 6. Það var semi-pulsan Tracy Murray sem setti 50 stig fyrir Wizards á undan Michael Jordan.
3. Hver er síðasti leikmaður til að ná fjórfaldri tvennu með stattalínuna 34-10-10-10 (stig-fráköst-stoðs.-blokk)?
Það var David Robinson sem gerði það. Einn af aðeins fjórum í sögunni. Flestir giskuðu á Robinson eða Olajuwon sem var næstur á undan Robinson að ná fjórfaldri tvennu.
4. Árið 1995 skömmu eftir fyrri endurkomu sína átti Michael Jordan eftirminnilegan leik gegn New York í Madison Square Garden þar sem hann skoraði 55 stig. Chicago vann þennan leik á sigurkörfu en það var ekki Jordan sem skoraði hana. Hver skoraði sigurkörfuna eftir sendingu frá Jordan og sagði svo eftir leikinn "Ég og Jordan settum samtals 57 kvikindi"?
Það var meistari Bill Wennington sem setti þessa körfu.
5. Hvaða liðsfélagar afrekuðu það síðast að skora yfir 40 stig í sama leik fyrir sitt lið?
Ég játa það að hér var ég að leita að svarinu Michael Jordan og Scottie Pippen (hvað er með allar þessar Chicago spurningar?). NBA eru svolítið skrýtnir í hvernig þeir aðgreina tölfræði í úrslitakeppni og regular season. Eins og spurningin er orðuð verð ég að sjálfsögðu að gefa rétt líka fyrir Reggie Miller og Jalen Rose sem settu báðir yfir 40 í úrslitakeppninni 2001.
6. Seint á ferlinum átti Isiah Thomas fræga sendingu þar sem hann bouncaði boltanum af gólfinu upp í alley oop þar sem nokkuð feitlaginn leikmaður tók við boltanum og náði að setja boltann í körfuna þó að hann hefði þurft að skoppa fyrst af hringnum áður en hann fór ofaní. Þessi troðsla var sýnd tímabilið á eftir í kynningu á NBA þáttum og hefur margoft sést síðan. (Hægt að nálgast t.d. á YouTube http://www.youtube.com/watch?v=zU59FnpGt3Q). Spurt er ... hvað heitir pulsan sem klúðraði næstum því troðslunni eftir þessa frábæru sendingu?
Þessi er fáranlega erfið enda verða að vera 1-3 svínslegar svo það skili nú ekki allir 100% réttu. Pulsan sem ég var að leita að hér heitir Gerald Glass.
7. Spurt er um skotbakvörð. Hann var valinn í topp 10 í draftinu og var með 22.9 stig að meðaltali nýliðaárið sitt með liði í Austurdeildinni. Átti góðan feril með fjórum liðum en var þó aldrei valinn í stjörnuliðið. Sætti sig við minna sóknarhlutverk þegar leið á ferilinn og var sterkur varnarmaður í fleiri en einu meistaraliði.
Flestir átu þessa nú. Ron Harper var valinn í draftinu af Cleveland en var svo trade-að til Clippers þar sem hann átti góðan feril iðulega með um og yfir 20 stig að meðaltali en komst þó aldrei í stjörnuliðið. Hann varð að lokum mikilvægur role player í meistaraliðum Chicago og Lakers.
8. Árið 1984 var mjög gott nýliðaval í NBA deildinni þar sem m.a. Michael Jordan var valinn númer 3. Í sama vali var einnig valinn einn mesti íþróttamaður allra tíma. Snemma á ferlinum lést faðir hans og lét hann þá grafa með honum sín stærstu verðlaun til þess tíma. Á hann að hafa sagt við móður sína eitthvað á þessa leið "hafðu ekki áhyggjur, ég mun vinna önnur svona verðlaun". Um hvaða kempu er spurt hér?
Þessi var það sem gárungar kalla "trick" question. Þeir voru þónokkuð margir sem sáu í gegnum mig hér. 1984 var vissulega eitt besta valið í NBA sögunni með Hakeem #1, Jordan #3 og Barkley #5 ásamt fjölda af frábærum leikmönnum. #208 var hinsvegar valinn af Chicago sjálfur Carl Lewis. Þetta var siður sem tíðkaðist eitthvað í gamla daga og var þetta svokallað heiðursval. Verðlaunin sem Lewis jarðaði með föður sínum en sagðist myndu vinna önnur slík voru að sjálfsögðu Ólympíugull.
9. Spurt er um gamalreyndan kraftframherja sem er tiltölulega nýhættur í deildinni. Framherji þessi átti sitt besta tímabil snemma á tíunda áratugnum þegar hann átti algjört monster frákasta season og var með yfir 15 fráköst að meðaltali það tímabilið og var valinn í stjörnuliðið í kjölfarið. Hann var þó ekki frákastahæsti leikmaður NBA þetta tímabilið. Nokkuð góðan feril kórónaði þessi leikmaður svo með því að ná sér í meistarahring undir lok ferilsins.
Þetta er að sjálfsögðu Kevin Willis. Hann var með hvorki fleiri né færri en 15.5 fráköst að meðaltali 2002 en varð annar á eftir Rodman sem var byrjaður að vera í sérflokki í fráköstum. Hann vann svo meistarhring með San Antonio undir lok ferilsins og var 42 ára sitt síðasta season!
10. Svo skemmtilega vill til að 9 af fyrstu 12 valréttunum í ákveðnu NBA vali (drafti) hafa á undanförnum 12 árum allir spilað með sama liðinu (þó að sjálfsögðu ekki alltaf á sama tíma). Hvaða val er þetta (hvaða ár) og með hvaða liði hafa þeir allir spilað?
Hér er spurt um valið 1992 og liðið sem spurt er um er Miami Heat. Þessir leikmenn eru Shaq, Mourning, Harold Miner, Todd Day, Christian Laettner, LaPhonso Ellis, Clarence Weatherspoon, Jim Jackson og Walt Williams.
Bónusspurning:
Hver sagði um skólaferil sinn að "eina leiðin til að fá fimm A er þegar ég skrifa nafnið mitt". Átti pulsuferil með t.a.m. Boston, Portland og Sacramento. Man eftir honum í einum NBA Action þætti þar sem hann átti að koma inná en hafði gleymt að fara í búninginn sinn...snillingur!
Erkipulsan Alaa Abdelnaby er sá eini sem kemur hér til greina.
Ég mun svo fara yfir innsend svör og birta sigurvegarann.
NBA | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.1.2007 | 20:08
Birkir maður leiksins!
Náttúrulega bara skandall að Rutenka hjá Slóvenum hafi verið valinn maður leiksins. Hann var með 9 mörk úr hátt í 20 tilraunum. Birkir Ívar ver 24 skot og það sér það hver heilvita maður að það var hann sem réð úrslitum í þessum leik (og að sjálfsögðu Eradze líka með frábærri innkomu).
Svo verð ég líka að hrósa Loga í þessari keppni...hann var markahæstur okkar manna í dag og hefur iðulega hreðjar í að taka skot þegar sóknir eru að lenda í fjara út í leiktöf/vitleysu. Að auki var Alfreð skynsamur og dreifði vel álaginu sem er mikilvægt í svona leikjum og þegar svona langt er liðið á keppnina.
Svo verður maður að þakka íslenska liðinu fyrir að gefa manni þessar gleðistundir. Það er fátt jafn skemmtilegt að og að fylgjast með handboltalandsliðinu á stórmóti að standa sig vel. Það einhvern veginn hrífast allir með og mér er til efs að heilu og hálfu þjóðirnir fylkist svona á bak við land sitt í einhverri iþrótt fyrir utan knattspyrnu hjá stærstu löndunum í þeirri grein.
Frábær markvarsla tryggði Íslandi sigur á Slóveníu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Handbolti | Breytt s.d. kl. 21:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tenglar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Dagný litla systir Byrjuð að blogga aftur
- Bjössitkd Slappasti bloggari landsins
- Sigga syz Löt í blogginu
- Dagný og bumban