Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Lenti í þessu, hehe

Lenti í nákvæmlega sama þegar ég var á ferðalagi í Búdapest fyrir einhverjum árum. "Slysuðumst" til að plata okkur í að setjast í einn bjór á einum af mörgum börum/strípibúllum. Það var hann Mario, "Mr. Fuck" eins og hann kallaði sig sem sá um það ;-)

Lítið var á staðnum og svo koma gellur að spjalla og jú viljið þið ekki bjóða okkur drykk....er alveg ódýrt sko! Þegar við ætluðum að fara kom svo reikningurinn við skulum ekkert vera að ræða hann. Allavega þá kom helmassaður dyravörður á við annan mann og okkur var boðið að fara út í hraðbanka til að borga skuldina. Semsagt við vorum bara rændir. Engin ótrúleg fjárhæð en samt pirrandi og svekkjandi. Reyndar hlóum við dátt þegar við hittum Englendinga sem voru í sama móti og við í Búdapest og þeir höfðu lent í nákvæmlega sama nema miklu hærri upphæð.

Einnig vorum við varaðir við sumum matsölustöðum sem reyna að smyrja eitthvað extra á reikninginn ef það er hægt og svo eru leigubílstjórarnir svæsnir og best að ferðast bara með underground og/eða trams ef því verður við komið. Leigubílstjórarnir eru iðulega með einhverja skrýtna taxta á okkur túristana og t.d. kostaði sama far á hótel dag frá degi nánast aldrei það sama. Versta var svo einn sem í myrki gaf okkur til baka og rauk svo í burtu strax og við vorum komnir út....ástæðan fyrir að honum lá svona á: Jú hann gaf okkur alveg rétt til baka, þ.e. yfir 4000 nema hvað að það voru tveir 2000 seðlar sem voru í rúmenskri mynt!! Að sjálfsögðu algjörlega verðlausri miðað við Fórinturnar.

Engu að síður er gaman að koma til Búdapest, falleg borg en engu að síður vísast að hafa þessi atriði í huga!


mbl.is Reynt að svindla á ferðamönnum í Búdapest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þakka skemmtilega pistla

Var gaman að lesa þessa pistla Gunnars frá NBA úrslitunum. Eina var að mér fannst of mikið skína í gegn að pistlahöfundur heldur annaðhvort með Boston eða hefur eitthvað svakalega mikið á móti Kobe/Lakers. E.t.v. er það svosem bara í hausnum á mér...en pistlarnir voru engu að síður mjög góðir og skemmtileg tilbreyting frá þurru efni um NBA á mbl.is.
mbl.is Yfirburðir Boston - 17. meistaratitillinn í höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski er von?

Fyrst að Liverpool er búið að átta sig á að þeir verða að losa sig við svona pulsur ef þeir ætla að geta eitthvað!
mbl.is Riise í viðræðum við Roma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkt rugl

Einhver leikmaður sem liggur meiddur eins og hræ útaf vellinum er "HLUTI AF LEIKNUM"??? Hvað átti hann að biðja um leyfi til að kveinka sér bakvið markið? Það er annað ef menn kannski fara útaf til að vera útaf eins og maður hefur séð en í þessu tilfelli liggur Panucci greinilega og er eitthvað meiddur (þó varla mikið, óttalegt væl alltaf í þessum fótboltamönnum).
mbl.is UEFA: Mark Nistelrooy löglegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvandaðar NBA fréttir trekk í trekk

Hvaða sigurgöngu? Er einn leikur í röð allt í einu orðinn sigurganga?  Lakers tapaði fyrir Golden State í LA en vann þá svo á heimavelli GS. Semsagt einn leikur var öll sigurgangan.

 Svo var önnur frétt um daginn þar sem Dallas átti að hafa tapað áttunda leiknum sínum í röð. Það var náttúrulega algjört kjaftæði. Hið rétta var að þeir höfðu nú tapað 8 leikjum gegn liðum með yfir 50% vinningshlutfall síðan Jason Kidd kom til liðsins. Ætti að vera nokkuð augljóst að lið með 6-4 í síðustu 10 leikjum hefur ekki tapað 8 leikjum í röð.


mbl.is Charlotte stöðvaði sigurgöngu Lakers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisvert ósamræmi

Fyrirsögnin segir: "Igram skilur eftir sig stórt skarð"

 Í fréttinni segir svo: "...þótti ekki standa undir væntingum"

 Skilur maður þá eftir sig skarð ef maður stendur ekki undir væntingum?

 


mbl.is Ingram skilur eftir sig stórt skarð hjá Stjörnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yes please!

Þessi er HRIKALEGUR og ég myndi vilja fá hann í mitt lið takk fyrir! Sá hann spila fyrir Ghana á ÓL 2004 og þetta er bara jötunn, góður skotmaður og ég held að það vilji ekkert margir lenda í tæklingum við þennan kappa!
mbl.is Fyrirliði Ghana á leiðinni til West Ham?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bragat hinn steggjaði

Leyfi hefur fengist hjá Félagi Siðblindra á Íslandi fyrir birtingu eftirfarandi myndbands. Í aðalhlutverki er Bragat sem varð að feta í fótspor hálf-nafna síns Borat í sundferð síðastliðin laugardag.

bragat
Bragat vakti athygli sundlaugargesta!

Tvísmelling á myndbandið opnar það inni á YouTube. Ýtið einu sinni á 'Play' takkann í miðjunni til að horfa á það hér.


Ég vissi ekki að það væri mögulegt en...

....blessuð stúlkan gæti í framtíðinni fengið spurninguna:

"What's your name love?"

Sem yrði svarað

"I can't remember"

Og það ekki í kaldhæðni!


mbl.is Heitir eftir 25 hnefaleikaköppum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Ingvar Þór Jóhannesson
Ingvar Þór Jóhannesson
Tölvunarfræðingur FIDE meistari í skák og áhugamaður um íþróttir.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband